Það skeði þannig skildist mér á síðasta fimtikudag að áfram var haldið með spurnigarkeppni fyrirtækjana. Mætti þar fjöldi fólks á Cafe Síróp og fjögur lið. Þar mættust Tveir smiðir og fæðingarorlofssjóður og samkvæmt heimildum frá Kára braga þá unnu tveir smiðir fæðingarorlofssjóð 36-6 en töpuðu fyrir Pálma lækni 36-75.
Já fæðingarorlofssjóður fékk hann Pálma lækni með sér í lið en hann er víst að vinna þar ca 1 dag í mánuði. Pálmi læknir er víst líka nánast alvitur að mér skilst og keppir á ári hverju í þættinum útsvari. Sem sagt pró náungi.
Þetta uppátæki hjá þeim í fæðingarorlofssjóði leiddi nærri því til hjónaskilnaðar. Því eins og skiljanlegt er þá urðu liðsmenn tveggja smiða ekki par ánægðir með þetta þó sérstaklega þeir Kári og steypu Steini sem að eiga sitthvora konuna í þessum slóttuga fæðingarorlofssjóð.
Ég spurði karl föður minn fyrir keppnina hvurt að hann væri ekki með í liði tveggja smiða. Hann sagði að hann gæti það ekki vegna þess að hann væri ekki á launaskrá heldur verktaki hjá þeim og fannst þetta að mér sýndist fáránleg spurning. Hann mætir nú engu að síður oftar til vinnu( hjá dobbeljú smiths eins og Indriði myndi segja) en einu sinni í mánuði frekar svona í kringum 20.
Mér er það í fersku minni hvað allir á Hvammstanga voru ánægðir að fá bumbusjóðinn til okkar. Þetta yrði til þess að ungt og vel gefið fólk sem flutt hefði burt og menntað sig myndi snúa til heimabyggðar og fengi viðeigandi starf miðað við menntun. Þetta var rétt hjá þessu fólki og er sjóðurinn fullur af vel menntuðu starfsfólki. Því finnst mér svo skrítið að þau þori ekki að taka þátt í svona keppni og senda atvinnuspurningarkeppnismann í staðinn. Við hvað eru þau svona hrædd ? Hallmund ?

Þetta fór í taugarnar á mér ég varð reiður fyrir hönd míns gamla vinnustaðs og félaga og lét það út úr mér að þegar þetta lið þanna í fæðingarorlofssjóð kæmi saman þá væru þau bara leiðinleg þó að mér finnist þau sem persónur ekkert leiðinlegar. Því eins og dóttir hennar Rakelar hans Kára sagði. Það er mikill munur á því að vera leiðinlegur og vera leiðinlegur við einhvern.
Svo fór ég að hugsa hvaðan kemur þessi gremja þá áttaði ég mig.
SVINDLIÐ!!!!!!
Það var nebblilega önnur fyrirtækjakeppni haldin í sumar. Nánar tekið á Unglistarhátíðinni svona þrauta keppni. Þar mættu Brúarvinnuflokkurinn eldsprækir og fullir bjartsýni. Þar mætti líka bumbusjóðurinn og voru þau klædd í bleyjur og með snuð hangandi um hálsinn. Ég hélt að það væri til að tákna það að þau ynnu þarna. En aldeilis ekki það var til að tákna að þau ætluðu að haga sér eins og smákrakkar og svindla.

Í fyrstu þraut áttum við að labba eftir bita sem að liðsfélagar okkar stóðu á í röð, komsat framhjá þeim án þess að stíga niður af bitanum og án þess að koma við fleiri en einn liðsmann í einu.

Þegar ég var að hlúnkast framhjá liðsfélögum mínum þá snerti ég tvo í einu og þurfti að byrja upp á nýtt. En þegar Bjössi hemmalögguson í bumbusjóðnum kom við tvo liðsfélaga í einu þá voru dómararnir þeir Danni Geir og Siggi Hólm sennilega að bora mjög fast og langt uppí nefið á sér því að ekkert var dæmt á bumbusjóðinn.
Seinna í keppninni voru liðsmenn látnir kasta grjóti í flísar og voru reglurnar nokkuð skírar. Hver leikmaður átti að henda steinunum sem okkur var úthlutað og þegar hann væri búinn að henda öllum þá mætti sækja þá handa næsta. Þetta gerðum við í brúarflokknum samviskusamlega. Þegar kom að bumbusjóðnum þá henntu þau og náðu í grótin eins og þeim sýndist.

Við lögðum fram kvörtun en dómaraleysurnar þorðu ekki að gera neitt.
Svo var komið að loka þrautinni. Þar útskýrðu dómararnir reglur þrautarinnar fyrir keppendum. Þar var einn hluti þrautarinnar að kasta svona kubb keflum í kubb kubba skýrt var tekið fram að maður ætti að henda fyrst í kubbinn sem var næst manni og svo koll af kolli ef maður hitti í kubb sem að væri fjær á undan þeim sem að væri nær þá ætti að reisa hann upp aftur.
Þetta gerði hann Danni á hvalshöfða fyrir okkar hönd samviskusamlega. En fyrir bumbusjóðinn var það Raggi hennar Kollu hann hennti bara í kubbana í einhverri röð. Lokahnykkurinn í þrautinni var að einn liðsmaður hebbði bundið fyrir augun svo hann sæji ekki nokkurn hlut. Hinn ætti svo að snúa honum í svona ca 20 hringi og lóðsa svo hinn blinda og ringlaða með röddu sinni að vatnsfötu og láta hann koma með hana til sín.
Ég var sá með bundið fyrir augun og ringlaður hlúnkaðist ég eftir bendingum Hlyns og sá ekki baun. En hjá bumbusjóðnum var Bjössi hemmalöguson aftur á ferðinni. Hann gat bara labbað beint að fötunni og vissi nákvæmlega hvar hún var og virtist ekki þurfa neinar bendingar frá liðsélaga sínum.
Þú þarft nú ekki að vera geimvísindafræðingur til að átta sig á því að hann hafði hagrætt trebblinum sem bundin var um augu hans þannig að hann sá.
Eftir keppnina kom Elvar bróðir minn til mín og sagði að það væri greinilegt að Bjössi hebbði svindlað og tek ég mark á honum hann er jú læknismenntaður.
Fyrir vikið unnu þau keppnina.
Við urðum að sjálfsögðu hundfúlir og kvörtuðum í dómara sem að kölluðu okkur vælukjóa og sögðu okkur tapsára.
Já eins og ég sagði áðan þá var ég mjög reiður út í bumbusjóðinn út af spurningarkeppninni. En svo fór ég að hugsa. Hef nú ákveðið að að svona lagað skipti engu máli þetta er jú bara svona grínkeppni til gamans gerð. Vona ég því að við lendum á móti bumbusjóðnum í næstu viðureign ef við töpum þá er hægt að segja ég meina þau eru með pró gaur í liðinu.
Það er nebblilega þannig að brúarflokkur gúnda heyrir ekki yndir vegagerðina á Hvammstanga heldur yndir framkvæmdasvið í Reykjavík fyrir sunnan. Þar vinna um 80 manns allt hámenntað lið og höfum við samið við menn þar að ganga til liðs við okkur. Við erum komin með sagnfræðing og verkfræðing og svo er spurning með eina konu sem er bókasafnsfræðingur.
Ég hlakka svo til.
Kveðja Tommi Dan.